Gert er ráð fyrir að íbúum á Akureyri fjölgi um 200 á ári

Í forsendum þriggja ára áætlunar Akureyrarbæjar 2009-2011, sem lögð er fram í bæjarstjórn í dag, er gert ráð fyrir fjölgun íbúa um 200 á ári. Þróunin sl. 10 ár sýnir heldur meiri aukningu og síðasta ár sló öll met þegar bæjarbúum fjölgaði um ríflega 400 manns. Útsvarsprósenta er óbreytt á milli ára eða 13,03%. Framkvæmdaáætlun áranna 2009-2011 gerir áfram ráð fyrir miklum fjárfestingum í grunngerð samfélagsins framan af þessu tímabili. Helst ber þar að nefna að byggingu Hofs menningarhúss, fyrri áfanga Naustaskóla og fimleikahúss verður lokið á árinu 2009. Unnið verður áfram að uppbyggingu íþróttasvæða í tengslum við væntanlegt landsmót UMFÍ. Auk framangreindra verkefna verður unnið að hefðbundinni uppbyggingu á gatna- og fráveitukerfi bæjarins en framkvæmt verður fyrir rúma 2 milljarða króna á tímabilinu í þessum málaflokkum. Innifalið í því er bygging hreinsivirkis í Sandgerðisbót sem kosta mun nær 700 milljónir króna en þar af falla til tæpar 500 milljónir kr. á árunum 2009-2011. Framkvæmdir Norðurorku munu halda áfram og miðast þær að því að tryggja fyrirtækjum, bæjarfélaginu og nágrannasveitarfélögum nægjanlega orku til upphitunar húsnæðis og eflingar atvinnulífs. Í heild, þ.e. fyrir A- og B-hluta, gerir áætlunin ráð fyrir góðum rekstrarafgangi á tímabilinu, þrátt fyrir aukna þjónustu við bæjarbúa á flestum sviðum. Veltufé frá rekstri í A- og B-hluta er rúmir 4,8 milljarðar króna á tímabilinu. Í A-hluta, þ.e. bæjarsjóði og A-hluta fyrirtækjum, er veltufé frá rekstri tæpir 2 milljarðar króna á tímabilinu og skilar það handbæru fé upp á rúma 1,5 milljarða í lok árs 2011. Velta sveitarfélagsins og fyrirtækja þess er um 14 milljarðar króna á ári þessi ár en þar af eru skatttekjur tæpir 6 milljarðar króna á ári. Mikil uppbygging í stoðþjónustu bæjarfélagsins undanfarin ár hefur leitt til vaxandi rekstrarútgjalda en tekjuþróun sveitarfélagsins brúar bilið að mestu leyti. Tekið er á þessari þróun með 50-150 milljóna kr. árlegri hagræðingarkröfu í rekstri málaflokka.

Fjárhagsleg staða Akureyrarbæjar er traust og þrátt fyrir miklar framkvæmdir aukast skuldir A- og B-hluta lítið á tímabilinu en verða þó nokkuð lægri á hvern íbúa árið 2011 en var í árslok 2006. Eiginfjárhlutfall Aðalsjóðs hækkar úr 0,68 í 0,78 á tímabilinu. Veltufjárhlutfall Aðalsjóðs verður mjög gott eða 2,9 í lok tímabilsins.

Nýjast