12. mars, 2008 - 15:36
Fréttir
Framkvæmdaráð Akureyrar leggur áherslu á að hraðað verði eins og kostur er gerð undirganga undir Hörgárbraut og felur
framkvæmdadeild að leita eftir samstarfi við Vegagerðina um málið. Á síðasta fundi ráðsins var tekið fyrir erindi frá
skipulagsdeild þar sem óskað var eftir umsögn framkvæmdaráðs um minnisblað unnið af VGK - Hönnun hf. og varðar úrbætur í
umferðar- og göngustígamálum í Holtahverfi. Framkvæmdaráð lýsti ánægju sinni með þær tillögur að breytingum
á umferðarmálum þessa svæðis sem lagðar voru fyrir ráðið og telur að með þeim megi draga úr umferð stórra
bíla um íbúagötur og auka umferðaröryggi.
Ráðið bendir á að hluti þeirra breytinga sem hér um ræðir eru þegar á áætlun framkvæmdadeildar, t.d. tenging
Krossanesbrautar við Hörgárbraut um Óðinsnes.