Bókun Odds Helga er svohljóðandi: "Það er viðtekin venja að stjórnir félaga velja sér framkvæmdastjóra sem þá
starfa í umboði þeirra og eftir þeirra áherslum og vilja.
Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrarkaupstaðar sagði það eitt af meginrökum fyrir að setja rekstur menningarhúss undir sjálfseignarfélag
væri að við það öðlaðist húsið sjálfstæði og væri ekki hætta á íhlutun bæjaryfirvalda. Lagði
meirihlutinn mikla áherslu á þetta atriði. Því finnst mér það mjög furðulegt að bærinn skuli nú auglýsa eftir
framkvæmdastjóra fyrir húsið. Það gengur gjörsamlega á skjön við röksemdarfærslu þá sem beitt var þegar
ákveðið var að setja reksturinn í hendur sjálfseignarfélags ef bærinn ætlar nú að skikka því framkvæmdastjóra.
Þetta er enn eitt dæmið um gerræðislegar og undarlegar aðgerðir meirihlutans. Þess ber að geta að ég er alfarið á móti
því að setja reksturinn í hendur annarra og greiddi atkvæði gegn þeirri ákvörðun á sínum tíma."