Fyrstu hverfafundir Akureyrarbæjar verða í vikunni

Hverfafundur verður í Brekkuskóla á morgun og Síðuskóla á fimmtudag.
Hverfafundur verður í Brekkuskóla á morgun og Síðuskóla á fimmtudag.

Akureyrarbær boðar til hverfafunda í öllum skólahverfum bæjarins. Tveir fundir verða haldnir í þessari viku og þráðurinn síðan tekinn upp aftur næsta haust.

 Fyrsti fundurinn verður í  Brekkuskóla á morgun, miðvikudag  kl. 17 og síðan á fimmtudag,  23. maí í Síðuskóla og hefst hann einnig kl. 17. Gert er ráð fyrir að hver fundur taki um klukkustund.

 Á fundunum verður lagt upp með tvær meginspurningar:

 1)      Hvað er gott við hverfið þitt?

2)      Hvað má bæta í hverfinu?

 

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, opnar hvern fund með stuttu ávarpi en síðan brjóta íbúar umrædds hverfis spurningarnar tvær til mergjar. Bæjarfulltrúar verða í salnum og hafa það hlutverk að skrifa niður þær hugmyndir, umkvartanir, lof og last, sem fram koma í umræðuhópum íbúanna. Megináhersla verður lögð á að samtalið fari fram á forsendum bæjarbúa.Niðurstöðum fundanna, ábendingum og hugmyndum, verður komið í réttan farveg og á framfæri við stjórnendur sveitarfélagsins og pólitískt kjörna fulltrúa til frekari úrvinnslu.

Á hverjum fundi verður einblínt á nærumhverfið með íbúum hvers hverfis en að sjálfsögðu eru öll velkomin á alla fundina.

 Hverfafundir verða haldnir í öllum öðrum grunnskólum bæjarins og stefnt er að því að sú yfirferð klárist haustið 2024.

 Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.

 

 


Athugasemdir

Nýjast