Oddur Helgi Halldórsson formaður bæjarráðs sagði í samtali við Vikudag í morgun að starfshópnum væri ætlað að verða eins konar hugmyndasmiðja bæjarins í atvinnumálum. Þrátt fyrir að blikur séu á lofti í atvinnumálum hafi ýmsir sett sig í samband við bæjaryfirvöld með atvinnuskapandi verkefni í huga. Greinilegt sé að fjárfestar og fleiri sjái tækifæri á Akureyri og hlutverk starfshópsins verði meðal annars að setja sig í samband við þessa aðila.