Fyrsta Vetrarbrautskráningarathöfnin við Háskólann á Akureyri

Glæsilegur hópur kandídata sem brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri.
Glæsilegur hópur kandídata sem brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri.

Laugardaginn 18. febrúar fór fram fyrsta Vetrarbrautskráningarathöfn Háskólans á Akureyri. Athöfnin var ætluð kandídötum sem fengu brautskráningarpappíra sína í október 2022 og þeim sem brautskrást í febrúar 2023. Samtals eru þetta 72 prófgráður inntar af 71 kandídat af tveimur fræðasviðum.

Háskólinn á Akureyri hefur frá stofnun brautskráð 7.000 kandídata

Í ræðu sinni gerði Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, kandídötum grein fyrir því hversu fljótt þekking úreldist nú á dögum og impraði á mikilvægi endurmenntunar – sérstaklega í ljósi síbylju skoðana sem oftar en ekki eru kynntar sem vísindi: „Þá reynir á að geta greint á milli þess rétta og þess ranga. Sem stúdentar við Háskólann á Akureyri hafið þið, kandídatar góðir, öðlast færni til að greina þarna á milli – nýtið það vel!“.

Á þeim 36 árum sem Háskólinn á Akureyri hefur verið starfræktur hefur hann gefið 7.000 manns tækifæri til menntunar. Eyjólfur sagði Háskólann á Akureyri hafa gegnt lykilhlutverki: „Það eru ekki allir sem átta sig á því hversu gríðarleg breyting það var fyrir Íslendinga alla að eiga fleiri valkosti um nám á Háskólastigi með tilkomu HA. Skólinn hefur því ætíð haft að leiðarljósi að við erum hér til þess að bæta aðgengi allra Íslendinga að háskólanámi og hefur uppbygging fjarnáms, sem nú er orðið að kjarnastarfsemi skólans, verið lykilatriði í því að gefa Íslendingum öllum aðgengi að háskólanámi.“

Þetta með þægindarammann

Ávarp kandídats var í höndum Önnu Rósu Friðriksdóttur, sem lauk diplómanámi á meistarastigi í starfstengdri leiðsögn frá Kennaradeild. Hún talaði um áskorunina að fara í framhaldsnám eftir farsælan feril í starfi og þörfina á að stíga út fyrir þægindarammann: „Það er skemmtilegt til þess að hugsa að vera þessi sama manneskja. Stelpukjáninn sem sveif í gegnum grunnnámið með svo sterkar skoðanir að kennararnir máttu alveg vara sig. Og á hinn bóginn að vera fullorðin að koma sér út fyrir þægindarammann. Ég var í raun og veru ekki búin að átta mig á því hversu vel ég var búin að koma mér fyrir í þægindarammanum fyrr en ég byrjaði í meistaranáminu haustið 2019. Það að fara í fullt nám eftir langt hlé er heilmikil áskorun sem ég veit að mörg ykkar hljótið að tengja við,“ sagði Anna Rósa í ávarpi sínu.

Hér má sjá svipmyndir frá athöfninni:

Kan

Kandídatar fögnuðu með fjölskyldu og vinum

ÞAð

Anna Rósa Friðriksdóttir lauk námi í starfstengdri leiðsögn við Kennaradeild og hélt ávarp kandídata.

Kool

F.v. Hafdís Guðrún Pálsdóttir, Snædís Ylva Valsdóttir, kandídat í félagsvísindum og Valur Sæmundsson.

íris

 

Íris Sól Þrastardóttir, kandídat í sálfræði, fékk verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn grunnnema við sviðið.

Já

 

Sonia Wamuyu Wahome, kandídat í félagsvísindum.

Athugasemdir

Nýjast