10. febrúar, 2010 - 22:46
Fréttir
Fulltrúar Norðurorku mættu á síðasta fund sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar og gerðu þeir grein fyrir áætlun um fyrirhugaða
hitaveitu frá Botni að Árbæ. Sveitarstjórn samþykkti að fela sveitarstjóra að vinna með fulltrúa frá
Norðurorku ehf. að gerð kynningarefnis fyrir íbúa á væntanlegu veitusvæði.