20. nóvember, 2009 - 11:48
Fréttir
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra, sem haldinn var á Hótel KEA á Akureyri í gær, skorar á yfirvöld að endurskoða
fyrirætlanir sínar um auknar skattheimtur á íslenska ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan á undir högg að sækja á
alþjóða vettvangi vegna efnahagsástands í heiminum og ferðalög hafa dregist saman.
Á sama tíma er Ísland orðið samkeppnishæft í ljósi stöðu íslensku krónunnar. Við þessar
aðstæður skýtur skökku við að ríkisstjórn Íslands leggi hömlur á atvinnugreinina með stóraukinni skattheimtu, segir
í ályktun fundarins.