Frumlegar hraðahindranir

Blómapottarnir eru hin mesta prýði og draga vonandi úr umferðarhraða. Mynd/epe.
Blómapottarnir eru hin mesta prýði og draga vonandi úr umferðarhraða. Mynd/epe.

Búið er að setja blómaker í Laugarbrekku á Húsavík til að draga úr umferðarhraða.

Verið er að bregðast við athugasemdum íbúa götunnar sem hafa kvartað árum saman undan umferðahraða í götunni. Framkvæmdin er í samræmi við bókun á síðasta fundi framkvæmdanefndar Norðurþings. 

Nýjast