Freyvangsleikhúsið frumsýnir Gaukshreiðrið

Gaukshreiðrið er hrollvekjandi ádeilda á kerfið og þeim meðferðum sem beitt var á 7. áratug síðustu …
Gaukshreiðrið er hrollvekjandi ádeilda á kerfið og þeim meðferðum sem beitt var á 7. áratug síðustu aldar sem og þeirra meðferð sem geðsjúkir bjuggu við og hvernig litið var á geðsjúkdóma á þessum tímum. Myndir: Freyvangsleikhúsið

„Æfingar hafa gengið mjög vel og nú hlökkum við mikið til að sýna afraksturinn,“ segir Jóhanna Ingólfsdóttir formaður Freyvangsleikhússins. Frumsýning verður hjá leikhúsinu, föstudagskvöldið 16. febrúar n.k á leikverkinu Gaukhreiðrið eftir samnefndri bók Ken Kensey og leikgerð Dale Wasserman í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.

Leikverkið segir sögu indíánahöfðingjans Bromden sem hefur verið lengi á geðsjúkrahúsi í Bandaríkjunum. Bromden segir frá komu R.P. McMurphy á deildina og hvaða áhrif hann hafði á sjúklinga og starfsfólk hælisins. McMurphy hafði séð sér leik á borði og leikið sig geðveikan til þess að losna við fangelsisvist. Hann lendir þar í útistöðum við frú Ratchet forstöðukonu hælisins sem stjórnar hælinu vægast sagt með harðri hendi.

Jóhanna segir verkið lýsa á beinskeyttan hátt aðstæðum og þann uppreisnaanda sem ríkti í Bandaríkjunum og víðar á 7. áratug síðustu aldar sem og þeirra meðferð sem geðsjúkir bjuggu við og hvernig litið var á geðsjúkdóma á þessum tímum.

„Gaukshreiðrið er hrollvekjandi ádeila á kerfið og þeim meðferðum sem beitt var en lýsir á sama tíma einstöku sambandi sjúklinganna og hvernig þeir glíma við harðræði og niðurlægingu yfirvaldsins. Leikverkið inniheldur í senn sorg, gleði, hrylling og illsku svo verið tilbúin í að taka á öllum ykkar tilfinningaskala.“

Allt taka 18 leikarar þátt á sviði og annar eins fjöldi tekur með einum eða öðrum hætti þátt í sýningunni. Leikverkið verður sýnt næstu helgar í Freyvangi Eyjafjarðarsveit.


Athugasemdir

Nýjast