Fremur kaldur júlímánuður að baki

Úrkoman mældist 35,3 mm og er það rétt ofan meðallags áranna 1961 til 1990.
Úrkoman mældist 35,3 mm og er það rétt ofan meðallags áranna 1961 til 1990.

Fremur kalt var á landinu í júlí miðað við það sem verið hefur á öldinni, ýmist sá næstkaldastur eða þriðjikaldastur síðustu 20 árin. Miðað við síðustu tíu ár voru hitavik jákvæð á örfáum stöðvum á Suðausturlandi, mest +0,4 stig á Ingólfshöfða.

Að tiltölu var einna hlýjast um landið suðaustanvert, en hvað kaldast um landið norðanvert og norðaustanvert þar sem mánuðurinn var allvíða kaldari en júní. Þrátt fyrir þetta var tíð í aðalatriðum hagstæð. Vindur og úrkoma voru víðast nærri meðallagi.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 24,8 stig á Egilsstaðaflugvelli 12. júlí. Mest frost í mánuðinum mældist -2,0 stig á Grímsstöðum á Fjöllum þann 1. Júlí og í Miðfjarðarnesi þann 3.júlí.  Á stöðinni á Dyngjujökli (þar fara þó ekki fram staðlaðar mælingar) fór frostið mest -9,5 stig þann 25. Ekki hefur sést meira frost á hitamæli á landinu í júlí. Frostnætur urðu alls 13 í mánuðinum. Er það óvenjulegt í júlí, en hins vegar var það aðeins á fáum stöðvum í senn, í ýmsum landshlutum. Júlílágmarkshitamet voru sett á allmörgum stöðvum.

Sólskinsstundir yfir meðallagi

Á Akureyri var meðalhitinn 10,1 stig, sem er -0,5 stigum neðan meðallags áranna 1961 til 1990, en -1,3 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára. Úrkoman mældist 35,3 mm og er það rétt ofan meðallags áranna 1961 til 1990. Sólskinsstundir á Akureyri voru  187,8 og er það 29 stundum fleiri en í meðalári.

Mðalhiti á Akureyri það sem af er ársins, þ.e. frá janúar og til loka júlí var 4,1 stig. Það er 1,0 stigi ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára

Þetta kemur fram  í yfirliti Veðurstofu um tíðarfar í júlí.

 


Athugasemdir

Nýjast