Framkvæmdir hafnar við endurbætur á sundlauginni á Þelamörk

Framkvæmdir eru hafnar við umfangsmiklar endurbætur á sundlauginni á Þelamörk. Samið hefur verið við verktakafyrirtækið B. Hreiðarsson ehf. um að vinna verkið, sem á að vera lokið í síðasta lagi 1. desember nk. Verksamningurinn hljóðar upp á 105,6 milljónir króna. Í honum felst m.a. að byggja tækjaklefa, eimbað og tvo heita potta, breyta sundlaugarkarinu, setja upp ný stýrikerfi og bæta við öryggisbúnaði. Sundlaugin verður lokuð þar til framkvæmdum lýkur en starfsemin í íþróttahúsinu verður óbreytt, segir á vef Hörgárbyggðar.

Nýjast