Framkvæmdasjóður ferðamannastaða Verkefni í Glerárdal og Hlíðarfjalli fá 46 milljónir

Glerárdalur er i vaxandi mæli nýttur til útivistar
Glerárdalur er i vaxandi mæli nýttur til útivistar

Tveir styrkir komu í hlut Akureyrarbæjar við úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamanna, samtals um 46 milljónir króna.

Verkefnið Glerárdalur, stígagerð, bifreiðastæði, upplýsingaskilti, brýr og bekkir , 3. Áfangi hlaut tæplega 30 milljón króna styrk. Bæta á aðgengi við upphafslækinn, halda lagningu stígsins áfram inn dalinn um 1,3 kílómetra auk þess sem á að stækka og ljúka frágangi á bílstæði auk merkinga og áfangastað. Markmið verkefnisins eru áframhaldandi bætur á aðgengi í Glerárdal en svæðið er mjög vinsælt fyrir styttri göngur og útivist.

Þá hlaut Akureyrarbær styrk að upphæð 16 milljónir króna til að bæta aðgengi og öryggi fyrir útivist að sumarlagi í Hlíðarfjalli. Hanna á upplýsingaskilti, vegvísa og stikur auk þess að leggja lokahönd á hönnun gönguleiðar og fjallahjólaflæðibrautar um fjallið. Hlíðarfjall hefur hingað til að mestu verið vetraráfangastaður, en aukin ásókn er nú í að nýta fjallið til gönguferða og fjallahjólamennsku á sumrin.

Nýjast