Framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins á Akureyri samþykktur

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins við sveitarstjórnarkosningarnar þann 29. maí nk. var samþykktur á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í gærkvöld. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi skipar efsta sæti listans en Siguður Guðmundsson verslunarmaður, sem einnig sóttist eftir forystusætinu en hafnaði í 6. sæti í prófkjörinu á dögunum, er ekki á listanum.    

Framboðslistann skipa eftirtaldir:

  • 1. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi
  • 2. Ólafur Jónsson hérðasdýralæknir og bæjarfulltrúi
  • 3. Njáll Trausti Friðbertsson flugumferðarstjóri og viðskiptafræðingur
  • 4. Anna Guðný Guðmundsdóttir iðjuþjálfi og háskólanemi
  • 5. Björn Ingimarsson hagfræðingur
  • 6. María Marínósdóttir svæðisstjóri
  • 7. Jóna Jónsdóttir starfsmannastjóri
  • 8. Davíð Kristinsson heilsuþjálfari
  • 9. Ragnar Sigurðsson laganemi og formaður FSHA
  • 10. Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri
  • 11. Kolbrún Sigurgeirsdóttir grunnskólakennari
  • 12. Kristinn Frímann Árnason bústjóri
  • 13. Huld S. Ringsted verslunarrekandi
  • 14. Svavar Hannesson vátryggingaráðgjafi
  • 15. Kristín Halldórsdóttir gæðastjóri
  • 16. Baldvin Valdimarsson viðskiptafræðingur
  • 17. Anna Jenný Jóhannsdóttir laganemi
  • 18. Árni Bergmann Pétursson rafvirkjameistari
  • 19. Bjarni Jónasson starfsmannastjóri
  • 20. Haukur Ásgeirsson matreiðslunemi og fyrrv. sjómaður
  • 21. María Sigurbjörnsdóttir meinatæknir
  • 22. Gunnar Ragnars fyrrv. framkvæmdastjóri

Nýjast