Fótbrotnaði í gönguferð

Unglingspiltur slasaðist á fæti er hann var á gangi ásamt hópi af fólki upp í hlíðum Laufáshnjúks við Eyjafjörð á tíunda tímanum í gærkvöld. Pilturinn fékk grjót á sig sem losnað hafði úr hlíðinni. Björgunarsveitin á Grenivík var kölluð út og flutti manninn niður hlíðarnar. Að sögn lögreglunnar á Akureyri gengu björgunarstörf vel en pilturinn reyndist vera fótbrotinn og var hann fluttur til aðhlynningar á Akureyri.

Nýjast