Föstuganga í Laufás á föstudaginn langa

Ákveðið hefur verið að leggja af stað í föstugöngu Végeirsstöðum í Fnjóskadal á föstudaginn langa kl. 11.00, frá Grenivíkurkirkju kl. 12.00 og Svalbarðskirkju kl. 10.00. Gengið verður út Fnjóskadalinn og Dalsmynnisleið, Höfðahverfið og Svalbarðsströndina og frá Víkurskarðsafleggjara í Laufás.  

Koma má inn í hópinn hvar sem er á þessum leiðum. Áætlaður komutími í Laufás er um kl. 14.00. Matarmikil fiskisúpa með brauði verður í boði í Laufási á 1200kr. Lestur passíusálma og ljúfir tónar hefjast svo í Laufáskirkju kl. 15.00 en þeirri stund lýkur rúmlega kl. 16.00. Allir eru velkomnir.

Nýjast