Ákveðið hefur verið að leggja af stað í föstugöngu Végeirsstöðum í Fnjóskadal á föstudaginn langa kl. 11.00,
frá Grenivíkurkirkju kl. 12.00 og Svalbarðskirkju kl. 10.00. Gengið verður út Fnjóskadalinn og Dalsmynnisleið, Höfðahverfið og
Svalbarðsströndina og frá Víkurskarðsafleggjara í Laufás.
Koma má inn í hópinn hvar sem er á þessum leiðum. Áætlaður komutími í Laufás er um kl. 14.00. Matarmikil
fiskisúpa með brauði verður í boði í Laufási á 1200kr. Lestur passíusálma og ljúfir tónar hefjast svo í
Laufáskirkju kl. 15.00 en þeirri stund lýkur rúmlega kl. 16.00. Allir eru velkomnir.