Formaður Einingar-Iðju sat hjá við ákvörðun um verðhækkun á mjólk

Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju á Akureyri og fulltrúi Alþýðusambands Íslands í Verðlagsnefnd búvara, sat hjá þegar nefndin tók ákvörðun um hækkun á verði mjólkur og mjólkurafurða. Í bókun Björns kemur fram að hann hafi verið tilbúinn til að standa að ákvörðun um hækkun á búvörum þar sem tekið væri tillit til kostnaðarhækkana á kjarnfóðri, áburði, eldsneyti o.fl. Hann gat hins vegar ekki staðið að ákvörðun um hækkun á vaxtalið grundvallar. Hann telur að hagsmunum bænda, eins og annarra stétta í landinu, sé betur borgið með því að ná niður verðbólgu. Hækkun á vaxtalið grundvallarins muni hafa gagnstæð áhrif. Verðlagsnefnd búvöru hefur tekið ákvörðun um hækkun á verði mjólkur og mjólkurafurða, segir ennfremur á vef Einingar-Iðju. Áður en ákvörðun þessi var tekin lá fyrir krafa framleiðenda um verulegar verðhækkanir á grundvelli mikilla kostnaðarhækkana á kjarnfóðri, áburði og eldsneyti auk hækkana á vöxtum. Fulltrúar ASÍ og BSRB í nefndinni voru tilbúnir til að taka tillit til þessara sjónarmiða en beittu sér samt fyrir því að takmarka eins og frekar væri kostur að kostnaðarhækkununum væri hleypt út í almennt verðlag. Niðurstaðan varð sú að verð á mjólk og mjólkurafurðum mun hækka talsvert hinn 1. apríl nk. Verðið hækkar vissulega ekki eins mikið og framleiðendur höfðu farið fram á, en samt meira en fulltrúi ASÍ gat sætt sig við. Það var sú ákvörðun að velta hluta vaxtahækkana út í matvöruverð sem hann gat ekki staðið að.

Nýjast