Fólkið í blokkinni hjá Freyvangsleikhúsinu

Freyvangsleikhúsið ætlar að setja á sviði leikverkið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson o…
Freyvangsleikhúsið ætlar að setja á sviði leikverkið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson og er frumsýning á dagskrá 24. febrúar næstkomanid.

Freyvangsleikhúsið ætlar að setja á sviði leikverkið Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson

Frumsýning verður 24.febrúar .

 

Margir kannast við sögurnar af þessu fólki sem býr í sömu blokk. Um er að ræða hálfgert smásagnasafn sem kom fyrst út á bókárið  2001.


Leikgerðin var fyrst sett upp af Leikfélagi Reykjavíkur 2008 og var fylgt eftir með diski með lögunum úr verkinu, Í leikgerðinni er sagan nokkuð breytt frá bókinni, þó að persónur séu að miklu leyti þær sömu og húmorinn sá sami.Árið 2013 var svo sýnd 6 þátta sería á RÚV um þessar persónur sem var hvorki nákvæmlega sama saga og bókin og ekki heldur sama saga og leikverkið.


Hjartnæm saga

 

Fólkið í Blokkinni er hjartnæm saga af skrautlegu lífi fólks í blokk sem ákveður að setja upp söngleik og efniviðurinn er það sjálft.

Fjölskyldan Tryggvi og Solla með unglingana sína tvo Söru og Óla eru ekki hin hefðbundna fjölskylda, en hvað er hefðbundið?

Hárfinnur hárfíni er í forsvari fyrir hljómsveitina Sóna sem æfir stíft í kjallaranum á meðan Robbi húsvörður reynir ólmur að koma í veg fyrir að söngleikurinn komist á koppinn og hefur almennt allt á hornum sér

Sjarmörinn Hannes reynir allt hvað hann getur að ganga í augun á Söru.

Slagarar eins og Hárfinnur Hárfíni, Ofurmennið og að sjálfsögðu Fólkið í blokkinni, hljóma í þessari tilteknu blokk.

 

Fólkið í blokkinni hjá Freyvangsleikhúsinu er í leikstjórn Kolbrúnar Lilju Guðnadóttur og er tónlistin í höndum fagmanna undir stjórn Atla Rúnarssonar, með Helga Þórsson í fararbroddi í söng. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Freyvangsleikhúsinu.

 


Athugasemdir

Nýjast