Mæting á aðalfund AFE var góð en rúmlega 50 manns mættu á fundinn. Fundurinn hófst á venjulegum aðalfundarstörfum. Helena Þ. Karlsdóttir stjórnarformaður fór yfir verkefni Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar á árinu 2007, en því næst tók Magnús Þór Ásgeirsson framkvæmdarstjóri við og fór með skýrslu framkvæmdarstjóra og fór yfir ársreikninga félagsins. Fram kom að Atvinnuþróunarfélag Eyjarfjarðar hefur á síðast ári komið að verkefnum í öllum sveitafélögum sem eiga aðild að félaginu og hafa verkefnin verið afar fjölbreytt, allt frá því að vera fyrirspurnir frá fyrirtækjum/einstaklingum, vinna með sveitarfélögum eða viðamikil fjárfestingarverkefni.
Skipuð var ný stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, en hana skipa nú:
Baldvin Esra Einarsson framkvæmdarstjóri Kimi records
Bjarni Jónasson starfsmannastjóri FSA
Benjamín Baldursson bóndi Ytri - Tjörnum Eyjafjarðarsveit
Helena Þ. Karlsdóttir forstöðumaður svæðismiðlunar
Þórir Kristinn Þórisson bæjarstjóri Fjallabyggðar
Varamenn eru Bjarnveig Yngvadóttir forseti bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar og Jóhannes Bjarnason íþróttakennari og handboltaþjálfari. Fráfarandi stjórnarmenn eru Vilborg Jóhannsdóttir verlunarrekandi og Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri Dalvíkur.