Flugbrautarlenging opnuð

Í dag var lengd flugbraut á Akureyrarflugvelli ásamt nýju aðflugi formlega tekin í notkun. Jafnframt hefur ýmiss aðflugsbúnaður verið endurnýjaður og endurbættur sem eykur öryggi í aðflugi að flugvellinum og stuðlar að enn betri nýtingu á honum. Heildarkostnaður við verkið er um 1,7 milljarðar króna. Það voru þeir Kristján Möller samgönguráðherra og Arngrímur Jóhannsson flugstjóri sem „klipptu“ á borðann við  opnunina með því að fljúga áhann þegar þeir komu inn til lendingar á sjóflugvél Arngríms. Slökkviliðið bjó til mikinn vatnsboga sem flugvélin fór í gegnum, og var opnunin því hvort tveggja í senn tilkomumikl og óvenjuleg Þá kom fram í máli Kristján Möller við opnunina í dag að stjórn Flugstoða hefur samþykkt viljayfirlýsingu um og hafið undirbúning að því að stækka flugstöðina og bæt við búnaði til að unn sé að anna auknum flutningum bæði í fragtflugi og farþegaflugi. Framkvæmdir við flugvöllinn hófust vorið 2008 og var opnað fyrir flugumferð um endurbættan flugvöll  og nýtt aðflug tekið í notkun 29. júlí sl.Flugbrautin var lengd um 460 metra til suðurs og er nú 2400 metrar að lengd. Einnig var eldri hluti flugbrautarinnar styrktur og réttur af með nýju malbiki, endaöryggissvæði endurbyggð og stækkuð úr 60 metrum í 150 metra við hvorn enda vegna breyttra reglna frá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO). Heildarlengd flugbrautar með öryggissvæðum er þar með orðin 2700 metrar. Jafnframt hafa “axlir” við flugbrautina verið malbikaðar.Aðflugsljósabúnaður var endurnýjaður og nýr stefnusendir settur upp. Unnið er að uppsetningu á nýju og fullkomnu blindaðflugi sem gefur enn frekari möguleika fyrir þær tegundir flugvéla, sem notaðar eru í innanlandsflugi.Að framkvæmdum loknum er ljóst að Akureyrarflugvöllur er mun betur í stakk búinn til að þjóna millilandaflugi með frakt og farþega. Hlutverk hans sem varaflugvöllur styrkist við framkvæmdirnar sem og mikilvægi hans fyrir ferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi.Með lengdri flugbraut opnast ný tækifæri  fyrir flugrekendur til að nýta flugvöllinn til farþega- og fraktflutninga, m.a. með því að fleiri tegundir flugvéla geta núna farið um hann.Samstarf allra aðila sem komu að þessum framkvæmdum hefur verið gott og tímaáætlanir staðist. Lítils háttar röskun varð á innanlands- og millilandaflugi í júlíbyrjun 2008 vegna malbiksframkvæmda og viðgerða á eldri braut.  

Nýjast