Fjórar stúlkur voru fluttar til aðhlynningar á slysadeild Sjúkrahúss Akureyrar um tíuleytið í gærkvöld, eftir
að bíll þeirra valt útaf Eyjafjarðarbraut eystri við bæinn Þórustaði og hafnaði útí í mýri. Að
sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri er ekki talið að stúlkurnar fjórar séu alvarlega slasaðar. Bíllinn reyndist mikið
skemmdur og þurfti að fjarlægja hann með dráttarbíl.
15. mars er alþjóðlegur dagur Long Covid. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) ákveðið að tileinka marsmánuði baráttunni gegn mýtum um Long Covid og skerpa á vitund almennings um þau alvarlegu einkenni sem fylgja þessu ástandi.
Sprettur-Inn, í samstarfi við Skólafélagið Huginn og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, hefur hrundið af stað nýju samfélagsverkefni undir yfirskriftinni „Sneið fyrir samfélagið“.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá að gögn Samgöngustofu sýna skýra fækkun slysa frá því göngin voru opnuð. Eitt af meginmarkmiðum Vaðlaheiðarganga var að bæta umferðaröryggi og þessi þróun bendir til þess að þau hafi skilað þeim árangri,“ segir Valgeir Bergmann framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga.
Hollvinir heimsóttu lyflækningadeild í dag og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur, fyrrum deildarstjóra lyflækningadeildar.
Fólk verður ekki hrumt af því að eldast. Fólk verður hrumt þegar samfélagið tekur frá því hlutverk, tengsl og tilgang. Saga öldrunarþjónustu á síðustu áratugum er að hluta saga um slíkt hlutverkatap.