09. júní, 2008 - 12:32
Fréttir
Bílaklúbbur Akureyrar stendur fyrir hátíðinni "Bíladagar á Akureyri" dagana 13.-17. júní n.k. Bílaklúbburinn hefur haldið
þessa hátíð óslitið frá árinu 1974, þar sem einn af hápunktunum er bílasýning á
þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Bíladagar á Akureyri hafa þróast undanfarin ár í að verða langstærsta mótorsport hátíð landsins og búast
skipuleggjendur hátíðarinnar við 10-12 þús manns í bæinn. Bílaklúbbur Akureyrar ásamt Akureyrarbæ og stuðningsaðilum
sínum hefur nú komið upp tveimur gámum við Glerárgötu og Drottningarbraut til að minna ökumenn og þátttakendur í
Bíladögum 2008 á að fara nú varlega í umferðinni. AIM eða Akureyri International Musicfestival mun einnig fara fram sömu daga og því
ljóst að um nóg verður að vera á Akureyri.
Skráningar í alla viðburði og nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins http://www.ba.is/
Dagskrá bíladaga 2008 er svo hljóðandi:
13. júní Kl. 20.30 Hóprúntur um bæinn og formleg setning Bíladaga
14. júní Kl. 17.00 Olís - Götuspyrnan, Tryggvabraut
15. júní Kl. 15.00 Drift - (Staðsetning kynnt á Götuspyrnu)
16. júní Kl. 20.30 Burn-Out á Akureyrarvelli
17. júní Kl. 10.00 Þjóhátíðarbílasýning í Boganum - opið til 18.00
VIP armbönd inn á alla viðburði seld hjá Olís Álfheimum og Fellabæ ásamt Ellingsen á Akureyri.