Auk Bjargar koma fram á tónleikunum; Óskar Pétursson, Kór Akureyrarkirkju, Stúlknakór Akureyrarkirkju og kammerkórinn Hymnodia. Organistar og stjórnendur kóra eru Eyþór Ingi Jónsson og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Aðgangseyrir er kr. 1000, allir sem að tónleikunum koma gefa vinnu sína og mun aðgangseyririnn renna óskiptur til sjóðsins.
Tilgangur líknarsjóðsins er að veita líknar - og viðlagaaðstoð til sóknarbarna Akureyrarkirkju, með sérstaka áherslu á aðstoð til bágstaddra fjölskyldna fyrir jól, sem séra Þórhallur lagði mikla áherslu á í sínu starfi og sinnti af mikilli alúð. Akureyringar eru hvattir til að leggja þessu mikilvæga málefni lið, nú á tímum þrengri fjárhags og erfiðleika hjá mörgum fjölskyldum.