Akureryarkaupstaður fær úthlutað tæpum 3,8 milljónum króna, eða sem nemur 220 krónum á íbúa, Grýtubakkahreppur fær rúmar 5 milljónir króna í sinn hlut eða rúmar 14.000 krónur á íbúa, Grímseyjarhreppur fær tæpar 4,7 milljónir króna, eða rúmar 45.000 krónur á ibúa, Dalvíkurbyggð fær um 15,5 milljónir króna eða tæpar 8.000 krónur á íbúa og Norðurþing fær tæplega 1,7 milljón króna í sinn hlut eða 563 krónur á íbúa.
Úthlutunin nú byggist á sambærilegum forsendum og árið 2007 sem er áhrif ákvörðunar um aflaniðurskurð á einstök sveitarfélög þar sem aflamark er skráð. Þó er að þessu sinni miðað við minnkun aflamarks eins og það var í hverju sveitarfélagi um sig þann 1. september 2007, en ekki meðaltal úthlutaðs aflamarks nokkur fiskveiðiár þar á undan eins og gert var fyrir ári. Ráðuneytið telur að með því sé betur mætt áhrifum af niðurskurði í aflamarki þorsks í hverju sveitarfélagi þar sem skoðuð er staða aflamarks við upphaf þess tíma er niðurskurðurinn tók gildi. Alls er 200 milljónum króna varið til þessa þáttar.
Þá er sú breyting gerð nú, að sérstakt tillit er tekið til breytinga sem átt hafa sér stað í lönduðum afla milli fiskveiðiáranna 2006-2007 og 2007-2008. Alls er 50 milljónum króna varið til þessa þáttar, en framlaginu er ætlað að mæta minnkandi umsvifum í starfsemi hafna vegna ákvörðunar um niðurskurð í aflamarki þorsks.
Við úthlutunina var tekið mið af því, að vægi ofangreindra þátta er misjafnt í atvinnustarfsemi einstakra sveitarfélaga. Ennfremur var ákveðið að hámarksúthlutun til einstakra sveitarfélaga yrði 35 milljónir króna. Markmið úthlutunarinnar er að framlag renni til þeirra sveitarfélaga sem verða fyrir umtalsverðum áhrifum vegna hins tímabundna samdráttar í þorskafla.