Fjallað um þróun veiða í ám og vötnum og litið á horfur í sumar

Guðni Guðbergsson fiskifræðingur heldur erindi hjá Stangaveiðifélagi Akureyrar, í Framsóknarhúsinu við Hólabraut, á morgun þriðjudag kl. 20.30.  Í erindi sínu fjallar Guðni um starfsemi Veiðimálastofnunar og áherslur hennar í rannsóknum. Fjallað verður um þróun veiða í ám og vötnum á undanförnum árum og litið á horfur komandi veiðisumars.  

Í hverju eru áhrif stangveiða fólgin? Hversu sterkt veiðitæki er stöngin? Að erindi loknu svarar Guðni fyrirspurnum fundarmanna. Guðni Guðbergsson er fiskifræðingur og sviðsstjóri Auðlindasviðs Veiðimálastofnunar og hefur starfað við rannsóknir á laxi og silungi frá árinu 1979.  Hér er á ferðinni mjög áhugvert erindi frá einum helsta sérfræðingi þjóðarinnar á þessu sviði. Erindið varðar svo sannarlega alla áhugamenn um stangveiðar.  Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

Nýjast