Fimm stöðvaðir fyrir hraðakstur í Hörgárdal í gærkvöld
20. ágúst, 2010 - 08:07 Fréttir
Fimm erlendir ökumenn voru stöðvaðir fyrir hraðakstur í Hörgárdalnum í gærkvöld, frá kvöldmatarleyti til
miðnættis. Lögreglan á Akureyri segir það frekar sjaldgæft að svo margir ökumenn séu stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á
sama kvöldi, sérstaklega útlendir ökumenn. Leyfilegur hámarkshraði í Hörgárdal er 90 km en ökumennirnir óku á bilinu
114-122 km hraða.
15. mars er alþjóðlegur dagur Long Covid. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) ákveðið að tileinka marsmánuði baráttunni gegn mýtum um Long Covid og skerpa á vitund almennings um þau alvarlegu einkenni sem fylgja þessu ástandi.
Sprettur-Inn, í samstarfi við Skólafélagið Huginn og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, hefur hrundið af stað nýju samfélagsverkefni undir yfirskriftinni „Sneið fyrir samfélagið“.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá að gögn Samgöngustofu sýna skýra fækkun slysa frá því göngin voru opnuð. Eitt af meginmarkmiðum Vaðlaheiðarganga var að bæta umferðaröryggi og þessi þróun bendir til þess að þau hafi skilað þeim árangri,“ segir Valgeir Bergmann framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga.
Hollvinir heimsóttu lyflækningadeild í dag og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur, fyrrum deildarstjóra lyflækningadeildar.
Fólk verður ekki hrumt af því að eldast. Fólk verður hrumt þegar samfélagið tekur frá því hlutverk, tengsl og tilgang. Saga öldrunarþjónustu á síðustu áratugum er að hluta saga um slíkt hlutverkatap.