Varða þessi hlaut nafnið HARÐARVARÐA. Það er í höfuðið á Herði Sverrissyni sem hefur verið tengdur Hlíðarfjalli og starfinu þar í 60 ár sem skíðamaður, skíðakennari og lyftuvörður. Hann hefur lengi mælt fyrir nauðsyn þess að hlaða myndarlega vörðu á brún Hlíðarfjalls til að draga fleiri þangað upp í gönguferðir og útivist í þá paradís sem þar er að finna. Nú er draumur Harðar orðinn að veruleika og því fannst hleðslufólki við hæfi að kenna vörðuna við hann. Í vörðunni er bók sem göngufólk getur skrifað nafn sitt í.
Alls komu 25 manns að verkinu og allt í sjálfboðavinnu í nafni hugsjónarinnar um holla og góða útivist. Hægt er að sjá fleiri myndir frá hleðslunni á vefsíðunni: http://www.24x24.is/.