Við leit á heimilinu fundust um 100 grömm af kannabisefnum til viðbótar og viðurkenndi maðurinn að hafa ætlað hluta þeirra til sölu. Fólkinu var sleppt að loknum skýrslutökum og telst málið upplýst. Lögreglan minnir enn og aftur á fíkniefnasímann 800-5005, en það er símsvari sem má hringja í nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.
Þá var rúmlega tvítugur starfsmaður Sjallans á Akureyri stunginn með hnífi í kviðinn á veitingastaðnum um hálf tíu leytið gærkvöld, samkvæmt því sem fram kemur á frétt á mbl.is. Árásarmaðurinn er árinu yngri en talið er að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Að sögn lögreglunnar á Akureyri í gærkvöld, var líðan mannsins sem var stunginn eftir atvikum en hann var ekki alvarlega særður. Ekki er vitað um tilefni árásarinnar og búist er við að maðurinn nái fullum bata.