Fiðringur á Norðurlandi fer fram í Hofi í fjórða sinn
Fiðringur fer fram í Menningarhúsinu Hofi næsta miðvikudag, 7. maí og er þetta í fjórða sinn sem keppnin er haldin. Í ár munu tíu skólar af Norðurlandi mætast. Grunnskóli Húnaþings vestra tekur þátt í fyrsta sinn og vonandi taka fleiri skólar frá Norðurlandi vestra þátt á næsta ári því markmiðið er að sinna öllu Norðurlandi frá Borðeyri til Bakkafjarðar!
Þjálfar sköpunrvöðva þátttakenda
Nemendur á unglingastigi þátttöku skólanna hafa unnið að sínum atriðum alla vorönnina undir handleiðslu leiðbeinanda en mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og lýðræðisleg vinnubrögð. Hugmyndin og útfærslan kemur frá nemendum sjálfum, þeir sjá alfarið um listræna útfærslu hvað varðar búninga, leikmynd, sviðhreyfingar, ljós og hljóð þannig að þátttaka í Fiðringi þjálfar sköpunarvöðva þátttakenda hressilega. Það verður spennandi að sjá og heyra afraksturinn í Hofi þar sem ungmennin fá að tjá sig um það sem þeim liggur á hjarta á listrænan hátt.
Fiðringslagið verður flutt í dómarahléi á úrslitakvöldinu en í ár kusu nemendur lagið Hjörtu með Daniil sem mætir á svæðið og skemmtir áhorfendum.
Kynnar í ár eru MA-ingarnir Hákon Snorri Rúnarsson og Vilté Petkuté en þau tóku bæði þátt í Galdrakarlinum í Oz með LMA á dögunum.
Fiðringur á Norðurlandi er áhersluverkefni SSNE í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar að frumkvæði Maríu Pálsdóttur