Farkort í leigubíla fyrir fatlaða ekki hækkað í tíu ár

Á síðasta fundi framkvæmdaráðs var tekið fyrir erindi frá Jóni Hlöðveri Áskelssyni þar sem hann bendir á hvort Akureyrarbær geti réttlætt að á þeim tímum sem almenningur ferðast gjaldfrjálst með SVA þá eigi þeir fötluðu kost á startgjaldi í leigubíl á 600 kr. farkorti sem ekkert hefur hækkað í tíu ár. Í bókun framkvæmdaráðs kemur fram að ráðið telur nauðsynlegt að reglur um ferlimál verði endurskoðaðar. Deildarstjóra framkvæmdadeildar var falið að vinna frekar að málinu og gera tillögur að nýjum reglum í samvinnu við búsetudeild.

Nýjast