09. ágúst, 2010 - 08:55
Fréttir
Handverkshátíð er í fullum gangi enn því opið er í dag frá klukkan 12-19. Gríðarlegur fjöldi gesta heimsóttu
hátíðina í gær og bros var á vörum allra. Eyjafjarðarsveit bar í dag sigur úr bítum í brunaslöngubolta sem
sveitarstjórnir á Eyjafjarðarsvæðinu kepptu í. Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Akureyrarbær og Eyjafjarðarsveit
mættu með lið til keppni í blíðskaparveðri.
Úrslit voru kunngjörð í fegurðarsamkeppni sem fór fram á vegum Félags landnámshænsna. Það var Einar Gíslason
frá Brúnum sem átti fegursta hanann sem ber nafnið Blandon. Guðlaugur M Ingason frá Ólafsfirði átti fallegustu hænuna sem ber
nafnið Rósa.