Þær forsendur sem Vísbending byggir á við val á draumasveitarfélaginu eru m.a.:
1) Skattheimta þarf að vera sem minnst.
2) Breytingar á fjölda íbúa hóflegar.
3) Afkoma sem hlutfall af tekjum á að vera sem næst 10%.
4) Hlutfall skulda af tekjum sé sem næst 1.0.
5) Veltufjárhlutfall sé nálægt 1,0 þannig að sveitarfélagið hafi góða lausafjárstöðu en hafi ekki of mikla peninga í
lélegri ávöxtun.
Hvað önnur sveitarfélög varðar má benda á að Seltjarnarnes fær einkunnina 7,8 og er eina sveitarfélagið sem fær yfir 7,0 í
einkunn. Næst kemur Snæfellsbær með 6,8, þá Eyjafjarðarsveit með 6,7. Húnaþing vestra og Hveragerði eru jöfn með 6,4.
Þá kemur Dalvíkurbyggð með 6,3, Akureyri með 6,2, Garðabær með 6,1, Ölfus með 6,0 og Mosfellsbær með 5,9.
Á þessu má sjá að vel hefur verið staðið að rekstri sveitarfélagsins á undanförnum árum og að staða
sveitarfélagsins er afar sterk miðað við áðurnefndar forsendur, segir á vef Eyjafjarðarsveitar.