Fimman hjá SVA ekur aftur sína leið

Fimman fer sína leið frá og með n.k þriðjudegi.
Fimman fer sína leið frá og með n.k þriðjudegi.

Þriðjudaginn 19. mars fer leið 5 hjá Strætisvögnum Akureyrar aftur sína leið samkvæmt áætlun og hættir að aka um Kristjánshaga eftir tímabundna breytingu á leiðinni vegna framkvæmda í Naustahverfi.

Biðstöðvar sem settar voru upp til bráðabirgða í Kristjánshaga verða þá færðar aftur upp í Kjarnagötu við Jóninnuhaga og Geirþrúðarhaga eins og sést á meðfylgjandi korti.

 


Athugasemdir

Nýjast