ALEX ÍSLANDSMEISTARI Í KRAFTLYFTINGUM MEÐ BÚNAÐI

Alex mælir stöngina út
Alex mælir stöngina út

Alex Cambray Orrason kraftlyftingamaður úr Lyftingadeild KA náði frábærum árangri um síðastliðna helgi þegar hann gerði sér lítið fyrir og stóð uppi sem sigurvegari á Íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum með búnaði. 

Í kraftlyftingum er keppt í þremur greinum, hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Ýmist er keppt með sérstökum búnaði eða án búnaðar auk þess sem keppendum er skipt í þyngdarflokka eftir líkamsþyngd. Sigurvegari er loks sá sem lyftir mestri þyngd samanlagt í öllum þremur greinum.

Alex hefur verið einn öflugasti kraftlyftingamaður landsins undanfarin ár og verið að ná góðum árangri á sterkum mótum víðsvegar um Evrópu. Eins og áður segir kom hann sá og sigraði á Íslandsmeistaramótinu um helgina en hann lyfti samtals 812,5 kg!

Mótið hjá Alex
Hnébeygja: 320 kg
Bekkpressa: 207,5 kg
Réttstaða: 285 kg
Samtals: 812,5 kg

Alex, sem keppti í -93kg flokki, en ekki nóg með að vinna sinn flokk þá vann hann einnig samanlögðu keppnina. Alex undirbýr sig nú fyrir EM í Lúxemborg og verður gaman að fylgjast með okkar manni þar. 

Frá þessu segir á ka.is

 


Athugasemdir

Nýjast