Háskólinn á Akureyri leiðir nýtt alþjóðlegt samstarfsverkefni, Next GEN Tourism, sem hlotið hefur 250.000 evra styrk úr Erasmus+ áætluninni til næstu tveggja ára. Verkefnið miðar að því að styrkja getu og þekkingu lítilla og meðalstórra ferðaþjónustufyrirtækja til að takast á við kynslóðaskipti og tryggja áframhaldandi rekstur þeirra til framtíðar. Verkefnastjóri er Verena Karlsdóttir, lektor hjá Viðskiptadeild.
Hagkaup bauð upp á fermingarkvöld í versluninni í Smáralind í fjórða sinn Í síðastliðinni viku til þess að kynna unglingunum ýmislegt áhugavert fyrir fermingardaginn þeirra, svo sem að fræða þau um húðumhirðu.
„Þetta er ein stærsta stundin í lífi i okkar Þórsara, við getum nú litið björtum augum fram á veginn,“ sagði Nói Björnsson formaður Íþróttafélagsins Þórs þegar samkomulag um uppbyggingu íþróttamiðstöðvar á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs var undirritað á dögunum. Með samkomulaginu er sett af stað vinna við hönnun á íþróttamiðstöð á félagssvæði Þórs og í kjölfarið gerður samningur um fyrirhugaða uppbyggingu þar sem fram kemur nákvæm áætlun um verkefnið.
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Hrafnagilshverfi síðustu helgina í júní, eða dagana 26. - 28. júní 2026 Þetta verður í 14. sinn sem mótið er haldið síðan það fyrsta fór fram á Hvammstanga árið 2011 og í fyrsta sinn sem það er haldið í Eyjafjarðarsveit.
,,Börn ykkar eru ekki börn ykkar. Þau eru synir og dætur lífsins og eiga sér sínar eigin langanir. Þið eruð farvegur þeirra, en þau koma ekki frá ykkur.” Svo kvað arabíska skáldið Kahlil Gibran í bók sinni um Spámanninn sem Gunnar Dal þýddi svo listavel. Vissulega heimspekileg ljóð með djúpan boðskap sem ég hvet alla til að renna í gegnum og hugleiða.