Fyrrum KA- maðurinn, Elmar Dan Sigþórsson, er að gera góða hluti í Noregi þar sem hann spilar með 3. deildarliðinu Tornado Malöy.
Á heimasíðu félagsins er könnun þar sem mönnum eru gefin atkvæði eftir því sem þeir standa sig vel. Elmar Dan er í
öðru sæti á þessum lista með 26 % atkvæði, aðeins tveimur atkvæðum minna en efsti maður.Elmar gekk til liðs við félagið í vor og hefur byrjað tímabilið með glæsibrag hjá félaginu.
Nýtt fagráð um líknarþjónustu hefur verið skipað til þriggja ára í samstarfi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og Heilsuverndar (HV). Markmið ráðsins er að efla samvinnu heilbrigðisstofnana og styrkja líknarþjónustu á Norðurlandi.
„Við vonumst til þess að útboðsgögn verði klár um komandi mánaðamót og stefnu að því að auglýsa útboð og í framhaldinu helst að hefja framkvæmdir eins fljótt og raunhæfur möguleiki er á einhvern tíma á þessu ári,“ segir Jóhannes Baldur Guðmundsson fr...
Stjórn Hafnasamlags Norðurlands hefur óskað eftir heimild til að nýta erfir hæðir mannvirkja á Torfunefi til reksturs gistirýma/hótels. Skipulagsráð Akureyrar telur rétt að fylgja gildandi deiliskipulagi og ráðast ekki í breytingar sem fela í sér aukið byggingarmagn eða heimild til að uppbyggingar gistirýmis.
Hollvinir Sjúkrahúsins á Akureyri gera það svo sannarlega ekki endasleppt, fyrir nokkrum dögum færðu samtökin lyflækningadeild minnningargjöf og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur, fyrrum deildarstjóra lyflækningadeildar.
Árlegur fundur ungmennaráðs Akureyrarbæjar og bæjarstjórnar fór fram í Ráðhúsinu þriðjudaginn 17. mars. Á fundinum komu fram fjölbreytt sjónarmið og ábendingar um málefni sem varða börn og ungmenni í bænum.
Full ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af framtíð áætlunar- og sjúkraflugs um Húsavíkurflugvöll. Eins og kunnugt er liggur áætlunarflug niðri um Húsavíkurflugvöll um þessar mundir sem er miður.
Fjölmennur aðalfundur Eldri borgara á Akureyri (EBAK) fór fram i gær. Á fundinum var borin upp og samþykkt ályktun til þeirra framboða sem bjóða fram lista í komandi bæjarstjórnarkosningum þann 16 maí n.k.