Ekkert smit greindist á Norðurlandi eystra-Fjölgar í sóttkví
23. október, 2020 - 11:06
Ekkert smit greindist í gær á Norðurlandi eystra samkvæmt nýjum tölum á covid.is um kórónuveirusmit. Hins vegar fjölgar fólki um tuttugu í sóttkví. Nú er 38 í einangrun í landshlutanum sem er sami fjöldi og í gær en 119 eru í sóttkví.
Alls greindust 30 með kórónuveiruna innanlands í gær.
Nýjast
-
Eik fasteignafélag vill byggja við Gleráreyrar
- 25.04
Á fundi skipulagsráðs Akureyrarbæjar í gær var tekin til umræðu tillaga frá Kollgátu, sem Ingólfur Guðmundsson og Andrea Sif Hilmarsdóttir kynntu f.h hönd Eikar fasteignafélags um uppbyggingu á lóðum 2-8 við Gleráreyrar og svæðis vestan þeirra. -
Sólarhringssund hjá Óðinskrökkum
- 25.04
Hið árlega sólarhringssund iðkenda í Óðni stendur nú sem hæst. Einn sundamaður syndir í einu og er þetta því nokkurs konar boðsund. -
Fékk ekki að lækka gjaldskrárhækkanir Orkuveitu Húsavíkur
- 25.04
Á fundi stjórnar Orkuveitu Húsavíkur í vikunni var tekin fyrir tillaga Valdimars Halldórssonar, varaformanns þess efnis að dregið yrði úr fyrirhuguðum gjaldskrárhækkunum en Valdimar taldi næga innistæðu fyrir hendi til að lækka umrædda hækkun -
Banaslys í Eyjafjarðarsveit
- 24.04
Alvarlegt umferðarslys varð á Eyjafjarðabraut eystri , skammt norðan við Laugaland skömmu eftir kl. 13:00 í dag. Þarna hafði bíll lent út af og voru tveir aðilar sem í honum voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Lögreglan á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og er hún á frumstigi og ekki frekari upplýsingar að hafa að sinni. -
Umferðarslys á Eyjafjarðarbraut eystri
- 24.04
Alvarlegt umferðarslys varð á Eyjafjarðabraut eystri , skammt norðan við Laugaland skömmu eftir kl. 13:00 í dag. Þarna hafði bíll lent út af og í honum voru tveir aðilar. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir á vettvangi og getur lögreglan ekki veitt frekari upplýsingar á þessu stigi málsins. -
Kirkjutröppurnar og gangstétt í Listagilinu
- 24.04
Framkvæmdir við kirkjutröppurnar eru hafnar að nýju eftir talsvert hlé og er búið að byggja yfir neðsta hluta trappanna, en þar er verið að vinna í húsnæði sem er undir tröppunum. Að því loknu verður hægt að hefja vinnu við sjálfar kirkjutröppurnar, þeirri vinnu hefur seinkað m.a. sökum þess að erfiðlega gekk að fá verktaka í verkefnið og það var umfangsmeira en var ráð fyrir gert. -
Hefur allt sem þarf
- 24.04
Fyrstu kynni mín af Höllu Tómasdóttur voru í tengslum við vinnustað þar sem hún kom einn dag og ræddi við hópinn. Þessi dagur breytti svolítið lífi mínu því þarna uppgötvaði ég í raun hvernig ég get tekið stjórn á eigin lífi. Halla varpaði á skjá mynd af vatnsglasi sem í var vökvi um það bil að miðju glasi. Hún talaði um viðhorf okkar og hvernig við tökumst á við það sem lífið færir okkur. -
Söngveisla í Glerárkirkju á sumardaginn fyrsta
- 24.04
Tíunda kóramót eldri borgara á Norðurlandi fer fram á morgun sumardaginn fyrsta. Fyrsta kóramót eldri borgara var haldið á Húsavík á lokadaginn 11 maí 2002 með þátttöku fimm kóra sem komu frá Húsavík, Akureyri, Dalvík, og Hrísey, Siglufirði og Skagafirði. -
Samherji og Ice Fresh Seafood á stærstu sjávarútvegssýningu heims
- 24.04
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin Seafood Expo Global í Barcelona á Spáni opnaði í gær, 23. apríl. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum á sviði veiða, vinnslu og sölu sjávarafurða. Samherji og Ice Fresh Seafood eru að venju með stóran og vel útbúinn bás, þar sem tekið er á móti gestum frá öllum heimshlutum og afurðir kynntar. Ice Fresh Seafood sér um að selja afurðir Samherja og fleiri fyrirtækja.
Athugasemdir