Einn stunginn og annar sleginn með hamri

Minniháttar áverkar eftir líkamsárás. Mynd á facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Minniháttar áverkar eftir líkamsárás. Mynd á facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Einn var stunginn með hnífi og annar sleginn í höfuð með hamri í líkamsáras sem tilkynnt var til lögreglu kl. rúmlega 5 aðfaranótt síðastliðins laugardags.

Óljóst var um málsatvik í fyrstu en hinir slösuðu voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.

Áverkarnir reyndust minni háttar og voru aðilarnir útskrifaðir fljótlega. Þrír aðilar komu að málinu og voru þeir allir í annarlegu ástandi. Þeir gistu fangageymslur og var þeim síðan sleppt segir í tilkynningu lögreglu.

 


Athugasemdir

Nýjast