Dansmyndahátíðin Boreal haldin í þriðja sinn

Þriðja útgáfa dansmyndahátíðarinnar Boreal fer fram 11. - 17. nóvember 2022 í Deiglunni og Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri.

Boreal Screendance Festival miðar að eflingu danslista og margmiðlunar með sérstaka áherslu á alþjóðasamstarf. Í ár verða sýnd 27 vídeódansverk auk heimildamyndarinnar ‘Er Ást’ eftir Kristínu Andreu Þórðardóttur. Verkin sem sýnd verða eru eftir listafólk frá 12 löndum og hefst dagskráin formlega með setningarathöfn föstudaginn 11. nóvember, kl. 19:30 í Listasafninu á Akureyri. Sýningar verða síðan í Ketilhúsi Listasafnsins og í Deiglunni handan götunnar, en bæði rýmin eru í hinu víðfræga Listagili í miðbæ Akureyrar.

Mikið púður er lagt í umgjörð hátíðarinnar og að sýna verkin við bestu mögulegu aðstæður hvað varðar hljóð og mynd. Þar sem Boreal er alþjóðleg hátíð hentar hún jafnt heimafólki sem ferðamönnum. Allir gestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi enda fjölbreytileiki dansmyndanna gríðarlegur sem endurspeglar vel þann fjölda listafólks allsstaðar að úr heiminum sem tekur þátt í ár.

Það er samtímadansarinn og danshöfundurinn Yuliana Palacios sem er stofnandi og verkefnastjóri Boeral. Yuliana er frá Mexíkó en fluttist til Íslands árið 2016 og hefur síðan þá látið að sér kveða í menningarlífinu hérlendis. Hefur hún ýmist sett upp sett upp sjálfstæð dans- og gjörningaverk eða unnið í samstarfi við annað listafólk auk þess að sinna kennslu. Síðustu ár hefur Yuliana æ meir fengist við vídeódans og er dansmyndahátíðin Boreal ein birtingarmynd þess.

Boreal hlaut hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2021 sem veitt eru framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni. 

Samstarfs- og styrktaraðilar Boreal Screendance Festival 2022 eru: Akureyrarbær, Myndlistarsjóður, SSNE, Physical Cinema Festival, Prentmet/Oddi, Listasafnið á Akureyri og Gilfélagið/Deiglan.

 


Athugasemdir

Nýjast