Chicago frumsýnt í kvöld

Leikfélag Akureyrar, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, frumsýnir söngleikinn Chicago í Samkomuhúsinu í kvöld, föstudagskvöldið 27. janúar.

Með aðal hlutverk fara Jóhanna Guðrún, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Margrét Eir, Björgvin Franz Gíslason, Arnþór Þórsteinsson og Bjartmar Þórðarson. Með önnur hlutverk fara Jónína Björt Gunnarsdóttir, Ahd Tamimi, Elma Rún Kristinsdóttir, Kata Vignisdóttir, Anita Þorsteinsdóttir og Molly Carol Birna Mitchell. 

Leikstjóri er Marta Nordal, tónlistarstjóri Þorvaldur Bjarni, danshöfundur Lee Proud og um leikmynd sér Eva Signý Berger. Búningahönnuður er Björg Marta Gunnarsdóttir, um leikgervi sér Harpa Birgisdóttir, ljósahönnuður er Ólafur Ágúst Stefánsson, hljóðhönnuður er Sigurvald Ívar Helgason. Þýðingin er eftir Gísla Rúnar Jónsson.

Söngleikurinn Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verðlauna. Chicago var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi.

 Chicago


Athugasemdir

Nýjast