Vegalengdirnar móta skóladaginn í Öxarfjarðarskóla
Frá Raufarhöfn eru 62 kílómetrar í Öxarfjarðarskóla. Ferðin tekur um 50 mínútur með skólabílnum og allar heimferðir þurfa að rúmast í einni ferð á dag. Í vetur sækja 39 grunnskólanemendur skólann úr byggðum sem ná frá Kelduhverfi í vestri til Raufarhafnar í austri. Þar móta vegalengdirnar skóladaginn, allt frá því hvenær yngstu börnin fara í frístund til þess hvenær hægt er að halda íþróttaæfingar.