Dagur íslenskrar tungu Jónasarljóð í Jónasarlaug á Þelamörk
Á degi íslenskrar tungu í dag mánudaginn 16. nóvember kl. 18:00, flytur Kór Möðruvallaklaustursprestakalls valin lög við ljóð Jónasar Hallgrímssonar og færir þannig ljóðskáldið okkar góða inn í sundlaugina sem ber nafn hans. Stjórnandi kórsins er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.