Göngugata lokuð fyrir bílaumferð 1. maí – 30. september

Göngugatan verður lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja frá og með 1. maí. Opið verður fyrir ökutæki með aðföng frá kl. 7-10 alla daga. Aðgengi fyrir P-merkta bíla og ökutæki viðbragðsaðila verður ávallt tryggt. Opnað verður aftur fyrir umferð þann 30. september.

Lesa meira

Fræðsla fyrir foreldra um stafræna velferð barna

Heimili og skóli, í samstarfi við Akureyrarbæ, verður með fræðsluerindi um netöryggi og stafræna velferð. Foreldrar á öllum skólastigum eru velkomin.

Þessi fræðsla er sérstaklega sniðin að foreldrum sem vilja styðja börnin sín í að vaxa og dafna í stafrænum heimi. Á fundinum fá foreldrar fræðslu, hagnýt verkfæri og tækifæri til að styrkja samtal og samvinnu innan fjölskyldunnar.

Lesa meira

Samgöngur eiga að styðja við vöxt – ekki hamla honum

Það er orðið tímabært að stíga næstu skref í samgöngumálum landsins. Umræða um styttingu þjóðvegar milli Akureyrar og Reykjavíkur hefur staðið í meira en heila öld, en nú hafa gögnin sýnt okkur að þetta á ekki að vera draumsýn ein – þetta er nauðsyn.

Lesa meira

Gerum það sem virkar gegn ofbeldi

Tölfræðin segir okkur að fimmtungur kvenna hafi lent í ofbeldi í nánu sambandi. Á bak við þá tölu eru raunveruleg líf, fjölskyldur og börn. Ef við ætlum að takast á við þennan veruleika duga ekki falleg orð ein og sér.

Lesa meira

Í skólanum er skemmtilegt að vera - eða hvað?

Þegar börn koma heim úr skólanum spyrja gjarnan foreldrar/forráðamenn og jafnvel ömmur og afar hvort ekki hafi verið gaman í skólanum. Mörg börn svara af hjartans einlægni að það hafi verið mjög gaman en hluti nemenda getur alls ekki svarað þeirri spurningu játandi.

Lesa meira

Hlíðarfjall verði hjarta vetraríþrótta á Íslandi

Nýafstaðnir Andrésar Andarleikar í Hlíðarfjalli minna okkur á það sem raunverulega skiptir máli og það sem er mögulegt þegar metnaður, samstaða og gleði fara saman.

Lesa meira

Lokaorðið-Dómari ertu blindur

Útlit mitt í dag ber því kannski ekki vitni að ég hafi fyrir nokkrum áratugum verið svo til ofvirkur á íþróttasviðinu. Brjóstvöðvarnir eru að síga niður að belti, antilópuhraðinn sem var mitt aðalsmerki er svo til horfinn. Ég var æði oft réttur maður á réttum stað, er það nú ekki alltaf lengur að mati fjölskyldumeðlima. Leikgleðin farin en ég get enn talað hratt og þar með er það upptalið sem áður prýddi minn stælta íþróttalíkama.

Lesa meira

Sólarhringssund Óðins

Í sólarhringssundi Óðins syntu iðkendur félagsins samtals 122,5 km. Sundið hófst miðvikudaginn 22.apríl klukkan 15:00 og lauk fimmtudaginn 23.apríl kl 15:00. Sólarhringssundið er fastur liður í starfi félagsins og mikilvægur fjáröflunarviðburður þar sem iðkendur safna áheitum og styrkjum og rennur allur ágóðinn í sameiginlegan ferðasjóð. Ferðasjóðurinn er nýttur í æfingaferð erlendis sem eldri keppnishópar fara í annað hvert ár. Þá er stefnt að æfingarferð innanlands með alla keppnishópa á hverju ári. Ferðakostnaður á Vit-Hit leikana sem fara fram á Akranesi er einnig greiddur úr ferðasjóðnum en langflestir keppnishóparnir fara á það mót.

Lesa meira

Fræðaflakkarinn sem hlustar bara á tónlistarfólk sem byrjar á B

Vísindafólkið okkar – Sunna Símonardóttir

Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á rannsakendum Háskólans á Akureyri. Sunna Símonardóttir, lektor í félagsfræði við Félagsvísindadeild, er vísindamanneskja aprílmánaðar.

Lesa meira

Kjarnafæði Norðlenska óskar eftir 2,5 ha lóð við Týsnes

Kjarnafæði Norðlenska ehf. hefur áhuga á því að byggja nýjar höfuðstöðvar, sláturhús og kjötvinnslu á Akureyri. Starfsemin við Eyjafjörð hefur verið á þremur stöðum, við Grímseyjargötu á Akureyri, Fjölnisgötu á Akureyri og á Svalbarðseyri.

Lesa meira

Eyjafjarðarsveit og Skógræktarfélag Eyfirðinga Samningur endurnýjaður

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á dögunum að endurnýja samning við Skógræktarfélag Eyfirðinga til næstu tveggja ára og gildir hann út árið 2027.

Lesa meira

Lífsgæði fyrir fólkið sem lagði grunninn

Eldri borgarar hafa lagt grunn að þeirri velferð sem við búum við í dag og eiga skilið að njóta þess.

Lesa meira

Mönnunarvandi sem kallar á aðgerðir

Góð heilbrigðisþjónusta er ein af grunnforsendum þess að fólk ákveði að búa, starfa og ala upp fjölskyldu á hverjum stað. Ef aðgengi að sérfræðingum og nauðsynlegri þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins veikist, þá veikjast byggðirnar líka.

Lesa meira

Bjarg íbúðarfélag 16 íbúðir í Langamóa

Bjarg íbúðafélag er að byggja 16 leiguíbúðir við Langamóa 1 og 3 í Móahverfi á Akureyri.

Lesa meira

Að verða Akureyringur

„Er ekki gott að búa á Íslandi?“ spyr samstarfsmaður minn mig. Ég svara samstundis; „Jú, annars væri ég ekki hér!“ og skipa mér þar með í hóp fjölmargra einstaklinga af erlendum uppruna sem hafa fundið sér heimili á Akureyri.

Lesa meira

Natalie Lea sigraði Hæfileikakeppni Akureyrar 2026

Miðvikudaginn 22. april fór fram Hæfileikakeppni Akureyrar 2026 þar sem hæfileikarík ungmenni stigu á svið og sýndu listir sínar. Alls tóku 34 krakkar þátt með 13 fjölbreyttum atriðum og var stemningin einstaklega góð en frá þessu er sagt að akureyri.is

Lesa meira

Brúðuleiksýningin Rót er hjartnæm og hugmyndarík

Brúðuleiksýningin Rót verður frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar á morgun laugardag, 25. apríl. Hún er hjartnæm og hugmyndarík upplifun fyrir fjölskyldur og unga áhorfendur. Aldursviðmið er 8 ára og eldri. Í framhaldinu verða sýningar í Þjóðleikhúsinu í maí ogjúní í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík.

Lesa meira

Leggjast gegn því að biðsvæði leigubíla verði við Skipagötu

Hagsmunaaðilar og fasteignaeigendur við Skipagötu og Kaupvangsstræti leggjast gegn því að almennum bílastæðum í miðbæ Akureyrar verði fækkað til að rýma fyrir biðsvæði leigubíla.

Lesa meira

Þarfir eldri borgara í Akureyrarbæ í forgang

Eldri borgarar hafa lagt grunninn að því samfélagi sem við búum við í dag. Það er einföld sannfæring mín að við eigum að mæta þeim með virðingu, hlusta á reynslu þeirra og tryggja raunveruleg lífsgæði á efri árum. Við getum gert betur og það er mín skýra stefna að gera gott enn betra.

Lesa meira

Grænmetis-gremja

Það er fátt sem gerir mig jafn gargandi pirraða og að fara í matvöruverslun á Íslandi að kaupa grænmeti. Ég tek sérstaklega eftir þessu núna, verandi nýkomin heim frá útlöndum þar sem úrvalið og gæðin eru slík að ég hefði auðveldlega getað gerst grænmetisæta. Allt svo ferskt og gott.

Lesa meira

Félagsfólk Framsýnar með sterkari fjárhagsstöðu en launafólk almennt

Fjárhagsstaða félagsfólks í Framsýn er umtalsvert betri á öllum mælikvörðum en staða annars launafólks innan heildarsamtakanna ASÍ og BSRB. Þetta leiðir ný könnun Vörðu -Rannsónarstofnunar vinnumarkaðarins í ljós. Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu kynnti helstu niðurstöður könnunarinna á opnum fundi hjá Framsýn nýverið en félagið óskaði eftir að staða félagsmanna yrði greind sérstaklega.

Lesa meira

Nýtt lag með Óskari Péturssyni

Félagarnir Óskar Pétursson og Björgvin Þ. Valdimarsson eru að gefa út nýtt lag sem heitir „Það varst þú“ en þetta er nýjasta lag Björgvins og textinn er einnig eftir hann .

Lesa meira

Vorkoma Akureyrarbæjar Vilhjálmur B. Bragason er bæjarlistamaður Akureyrar 2026

Vorkoma Akureyrarbæjar var haldin í Menningarhúsinu Hofi í dag. Þar var meðal annars kunngjört að bæjarlistamaður Akureyrar 2026 er Vilhjálmur B. Bragason, leikari, tónlistarmaður og höfundur. Á hátt í 20 ára ferli hefur Vilhjálmur látið til sín taka á afar breiðu sviði listar; hvort sem um er að ræða tónlist, leiklist, leikstjórn, handritagerð eða þýðingar og hefur hann sett áþreifanlegt mark sitt á listalíf á Akureyri sem og á landsvísu.

Lesa meira

Frístundastyrkur fyrir eldri borgara

Akureyrarbær hefur ákveðið að innleiða nýjan tekjutengdan frístundastyrk fyrir eldri borgara með það að markmiði að efla þátttöku þeirra í uppbyggilegu frístundastarfi og draga úr félagslegri einangrun.

Lesa meira

Viljayfirlýsing um rafvæðingu skemmtiferðaskipa á Akureyri

Hafnasamlag Norðurlands og norska fyrirtækið PLUG hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf við uppsetningu rafmagnstenginga fyrir skemmtiferðaskip á Akureyri. PLUG hefur mikla reynslu af uppsetningu slíks búnaðar, meðal annars í Noregi og annars staðar.

 

Lesa meira

Vöfflur og bókagerð í Skúlagarði í dag

Lóa er komin með sumarið í Skúlagarð

Lesa meira

Verk að vinna

List- og verkgreinakennsla í grunnskólum Akureyrarbæjar er alls konar. Það getur verið styrkleiki að hafa fjölbreytni en í þessu tilfelli er frekar um að ræða viðbragð við vöntun á hæfum kennurum, bágri aðstöðu eða hreinlega fjárskorti. Aðstöðumunur milli skóla er mjög mikill, allt frá endurnýjaðri, mjög góðri aðstöðu til ófremdarástands eða jafnvel engrar aðstöðu. Hér er ekki gætt að jafnræði og rétti nemenda til náms.

Lesa meira