Í 20 ár hefur þjóðin svarað Neyðarkallinu
Sjálfboðaliðar björgunarsveitanna ganga í hús og verða á ferðinni dagana 4.–8. nóvember með Neyðarkallinn til sölu. Með kaupum á kallinum getur almenningur stutt við mikilvægt björgunar- og slysavarnastarf.
Sjálfboðaliðar björgunarsveitanna ganga í hús og verða á ferðinni dagana 4.–8. nóvember með Neyðarkallinn til sölu. Með kaupum á kallinum getur almenningur stutt við mikilvægt björgunar- og slysavarnastarf.
Í kosningunum í vor fundum við skýrt fyrir ákalli um að stíga fleiri skref í átt að samþættingu þjónustu við eldra fólk. Það ákall kom bæði frá eldra fólki og aðstandendum þess, en líka frá frábæru starfsfólki ólíkra stofnana sem vinnur daglega að þjónustunni og þekkir vel hvar tækifærin liggja.
Uppsjávarskipið Bjarni Ólafsson AK-70 er komið til nýrrar heimahafnar á Akureyri. Skipinu verður gefið nafnið Margrét og verður þar með fimmta skipið í sögu Samherja sem ber það nafn.
Akureyrarbær og Ferðamálafélag Hríseyjar hafa undirritað nýjan samning um framlög til verkefna á sviði ferðamála í Hrísey fyrir árin 2026–2029. Markmiðið er að efla eyjuna sem eftirsóknarverðan áfangastað allt árið um kring með samvinnu heimamanna og atvinnu-, menningar- og markaðsteymis bæjarins.
Skólasystkini hins fjölhæfa listamanns og mannvinar Þorvaldar Þorsteinssonar hafa komið fyrir granítbekk á Hamarkotstúni honum til minningar, skammt frá bernskuheimili hans við Hamarsstíg. Bekkurinn verður afhjúpaður á afmælisdegi hans næstkomandi laugardag, 7. nóvember klukkan 14.
Varp hjá rjúpu var með mesta móti á liðnu vori í Hrísey og segir Þorsteinn Þorsteinsson sem lengi hefur fylgst með viðgangi rjúpnastofnsins í eynni að það hafi verið svipað og árið 1966, fyrir hálfri öld.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær óskaði Þórhallur Jónsson Akureyrarlistanum eftir umræðu um fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú sem boðaðar hafa verið. Eftirfarandi ályktun sem Þórhallur lagði fram var samþykkt samhljóða.
Á vef Verkmenntaskólans er að finna skemmtilegt viðtal við Haukur Eiríksson kennara við skólann. Utan kennslu bregður hann sér af og til í það hlutverk að setjast við hljómborðið með félögum sínum í hljómsveitinni Drykkjum innbyrðis.
Ég sé á áframhaldandi greinarskrifum fulltrúa Samfylkingar í Umhverfis- og mannvirkjaráði að ég er inntur eftir svörum. Ég mun nú örugglega valda vonbrigðum þar, því ég verð hreinlega að fá að spyrja að ýmsu á móti.
Vart hefur verið við talsverðan músagang í Hrísey en Ólafur Pálmi Agnarsson hjá Meindýravörnum Norðurlands telur líklegt að stofn músa hafi verið að byggjast upp í eynni um nokkurra ára skeið án þess að fólk tæki eftir hvert umfangið er fyrr en nú nýlega.
Nú fyrir helgi skrifaði ég og fékk birtar í héraðsmiðlum hugleiðingar nýliða í bæjarmálum, þar sem ég játaði skilningsleysi mitt á hversu hátt hlutfall framkvæmdaáætlunar kjörtímabilsins væri eyrnamerkt tveimur íþróttafélögum hér í bæ. Fljótlega hefst margra milljarða uppbygging á Þórssvæðinu, á meðan enn á eftir að klára gríðarlega uppbyggingu á KA-svæðinu. Í greininni lýsti ég undrun minni á að ekki sé hægt að samnýta mannvirki sveitarfélagsins betur en nú er gert, ekki síst þegar kemur að þeim innviðum sem helst nýtast kappleikjum fullorðins fólks og tók þar dæmi af Milan-liðunum tveimur.
Margt hefur verið skrifað og sagt síðan föstudaginn fyrir rúmri viku síðan þegar kynnt voru áform um talsverðar breytingar á því kerfi sem alla jafna kallast Loftbrú. Margt í þeirri umræðu hefur verið gagnlegt, annað síður. Það hefur til dæmis bætt umræðuna að rýna í áhrif kerfisins á þróun miðaverðs í innanlandsflugi og áhrif þess að hverfa frá hlutfallslegum afslætti og yfir í fasta krónutölu, og hverjir koma þar best út og hverjir verða verst úti. Aftur á móti hjálpar það lítt að kasta fram gífuryrðum um aðför gegn landsbyggðinni eða „enn einn landsbyggðarskattinn“. Við þurfum frekar að halda til haga kjarna málsins.
Hafdís Alma Einarsdóttir, heimilislæknir hjá HSN á Akureyri, kann vel við fjölbreytileika og krefjandi verkefni. Í vinnunni sinnir hún fólki og fjölskyldum en í frítímanum sest hún undir stýri á svartri 1980 Corvette og keppir í spyrnu. Í sumar varð hún bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari í sínum flokki.
Barnastofa bráðamóttökunnar fékk nýverið höfðinglega gjöf þegar Páll Orri Jóhannsson færði henni 50 tommu snjallsjónvarp.
Eftirfarandi tilkynning var send til fjölmiðla frá kvennaráði knattspyrnudeildar KA rétt í þessu
KA og Þór hafa um árabil staðið saman að rekstri kvennaknattspyrnu á Akureyri í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna.
Það er bæði eðlilegt og mikilvægt að tekist sé á um forgangsröðun fjármuna Akureyrarbæjar. Við eigum að ræða hvort við verjum of miklu í einn málaflokk og of litlu í annan, hvort sem um er að ræða skóla, félagsþjónustu, götur, menningu, íþróttir eða aðra innviði. Það er einmitt hlutverk stjórnmálanna að forgangsraða þegar ekki er hægt að gera allt í einu. En slík umræða verður að byggja á heildarmyndinni og réttum forsendum.
Stjórn SSNE gagnrýnir boðaðar breytingar á Loftbrú og skort á efnislegu samráði við sveitarfélög og landshlutasamtök. Stjórnin vill nýta endurskoðunina til að styrkja Loftbrú sem byggðatæki og tryggja að breytingar skerði ekki kjör eða aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að stjórnsýslu og stofnunum ríkisins.
Sex mánuðum eftir sveitarstjórnakosningar.
Hvar eru efndirnar, bæjarfulltrúar?
Lögreglan á Akureyri sendi frá sér eftirfrandi tilkynninu fyrir skömmu:
Okkur var að berast tilkynning um aðskotahlut sem fannst í sælgæti sem dreift var í gærkvöldi vegna Hrekkjavöku. Um er að ræða nálar sem var stungið inn í nokkur Þrist og Milky Way súkkulaðistykki.
Við biðjum foreldra um að yfirfara það sælgæti sem börn þeirra fengu í gær og gæta varúðar.
Ef einhverjir vita um samskonar tilvik hvetjum við viðkomandi til þess að tilkynna það til lögreglu, í gegnum netfang nordurland.eystra@logreglan.is.
Okkur hafa einungis borist ein slík tilkynning að svo stöddu
Í þá gömlu góðu daga þegar ég lék knattspyrnu, knattspyrna heitir víst fótbolti í dag sem er hið besta mál, skiptir mig engu máli hvað hann heitir, aðallega að þetta sé skemmtilegt.
Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á rannsakendum við Háskólann á Akureyri. Valgerður Pálmadóttir, lektor við Kennaradeild, er vísindamanneskja októbermánaðar.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur falið bæjarstjóra að hefja undirbúning að nýrri stefnumörkun um orku- og gagnatengda atvinnustarfsemi í bænum.
Sveitarfélögin á félagssvæði Framsýnar og Orkuveita Húsavíkur hafa lýst yfir stuðningi við markmið verkalýðshreyfingarinnar um að halda verðhækkunum í lágmarki.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar telur að fyrirhuguð uppbygging við Hrísalund 3-5 sé of umfangsmikil miðað við næsta umhverfi og vill að húsið verði lækkað um að minnsta kosti eina hæð.
Tillagan gerir ráð fyrir sex hæða byggingu, en ráðið kallar jafnframt eftir frekari gögnum um vindáhrif, skuggavarp og hvernig byggingin fellur að nærliggjandi byggð.
Það hefur verið talsvert líf á bryggjunni í Grímsey undanfarið, en nokkrir bátar eru gerðir þaðan út um þessar mundir. Veiði hefur verið ljómandi góð og bátarnir að koma að landi með flottan ufsa, en verð fyrir hann hefur verið í hæstu hæðum.
Þann 30. október var svokallaður Sjóræningjadagur í Glerárlaug haldinn hátíðlegur. Hann er fyrir öll börn í sundskóla sundfélagsins Óðins. Þá bregðum við á leik og köfum eftir gulli og gersemum sem Krókur Skipstjóri hefur safnað sér í áranna rás.
Ísabella Anna Kjartansdóttir á að baki viðburðaríkt fótboltasumar. Hún skoraði átta mörk fyrir Völsung í Lengjudeildinni, varð Íslandsmeistari í þriðja flokki og hefur nú verið á æfingum með U16-landsliðinu. Hún stefnir á atvinnumennsku og A-landsliðið en einn mikilvægasti stuðningsmaðurinn er nærri henni, bæði innan vallar og utan: mamma hennar, sem hefur meira að segja lagt upp fyrir hana mark.