Lokaorðið - Óvinafagnaður

Í vetur las ég sagnabálk Einars Kárasonar, Óvinafagnað. Hef áður lesið Óvinafagnað, en rétt eins og með Sölku Völku og Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness þá er ekki síður gaman að lesa þær aftur og fá meiri dýpt.

Lesa meira

Kókómjólkurferna undir steini í nær hálfa öld

„Ég kem alltaf við af og til og vitja fernunnar,“ segir Guðlaugur Benedikt Aðalsteinsson hárskeri á Akureyri. Hann ólst upp á Húsavík. Í einum hjóltúr frá bænum og að Tröllakoti skildi hann eftir kókómjólkurfernu vel skorðaða undir steini. Síðan er liðin nær hálf öld og enn eru leifar af fernunni undir steininum.

Lesa meira

Listasafnið á Akureyri Fjórar nýjar sýningar

Fjórar nýjar sýningar voru opnaðar í Listasafninu á Akureyri og Lystigarðinum á dögunum. Sýningarnar standa yfir til 7. mars á næsta ári.

Lesa meira

Gleði, lærdómur og annríki í víðfemasta sveitarfélagi landsins

Katrín Sigurjónsdóttir tók við starfi sveitarstjóra Þingeyjarsveitar í byrjun ágúst. Hún segir móttökurnar hafa verið einstaklega góðar og er þegar farin að setja sig inn í fjölbreytt verkefni þessa víðfeðma sveitarfélags. Katrín vill vinna að framförum og farsælum lausnum – en ætlar líka að finna tíma til að kynnast berjalöndunum, ganga um Mývatnssveit og heimsækja Flatey.

Lesa meira

Glæsileg skólalóð við Glerárskóla

Skólalóðin við Glerárskóla hefur formlega verið tekin í notkun. Framkvæmdir hafa staðið yfir um nokkurt skeið en nú er þeim loksins að mestu lokið og leiktækin tilbúin til notkunar.

Lesa meira

Fincafresh flytur í Garðabæ

Starfsemi Fincafresh mun á næstu vikum verða flutt il Garðabæjar. Félagið hóf sína starfsemi á Dalvík en flutti til Akureyrar fyrir fáeinum misserum. Nú verður enn á ný lagt upp í ferðalag. Fincafresh selur ferska ávexti beint frá Spáni til áskrifenda.

Lesa meira

Mikil eftirspurn eftir herbergjum á Heimavistinni

Hafna þurfti tugum umsókna sem bárust um Heimavist MA og VMA nú á þessu hausti. Vistin er fullsetin, en þar búa nú um 330 nemendur sem stunda ýmist nám í Menntaskólanum á Akureyri eða Verkmenntaskólanum á Akureyri. Yfir 400 umsóknir bárust um vist á þessu hausti, en pláss er fyrir 330.

Lesa meira

Man varla eftir því að hafa fundið upp nafnið

Norðurþing fagnar 20 ára afmæli á þessu ári

Lesa meira

Litríkt starfsfólk Norðurorku

Starfsfólk Norðurorku tók þátt í Treyjudeginum í dag og mætti í sínum uppáhalds íþróttatreyjum til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Lesa meira

Uppselt á Vatnslitahátíð Íslands á Akureyri

Uppselt er á Vatnslitahátíð Íslands 2026 sem hefst á Akureyri í næstu viku. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins vegna viðburðarins, bæði innanlands frá og utan. Hátíðin hefst með opnun sýningar á um 90 vatnslitaverkum frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 10. september.

Lesa meira

Innisundlaugin tekin í notkun eftir endurbætur

Svo gott sem ný og glæsileg innisundlaug hefur verið opnuð í Sundlaug Akureyrar eftir umfangsmiklar endurbætur á húsnæðinu.

Lesa meira

Gulur september gengin í garð Hver grípur þig?

Í tilefni af Gulum september tekur fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og býður til notalegrar samverustundar á Birkivelli í Kjarnaskógi laugardaginn 5. september klukkan 14.00.

Lesa meira

„Algjör leikbreytir fyrir krakkana“

Nýtt húsnæði frístundar og félagsmiðstöðvar tekið í notkun í október

Lesa meira

Undirskriftarlistar vegna endurhæfingarinnar á Kristnesi afhentir

Búið er að safna 2511 undirskriftum til bjargar endurhæfingunni á Kristnesi sem verða afhentar heilbrigðisráðherra næsta mánudag.

Lesa meira

Skipulag sem má ekki borga sig!

Skipulögð brotastarfsemi hefur á undanförnum árum orðið umfangsmeiri og aðferðir brotahópa þróaðri og fjölbreyttari. Það kallar á öflug og samstillt viðbrögð þvert á ýmsa aðila m.a. stjórnvalda, löggæslu og atvinnulífsins. Mikilvægt er að löggjöf, rannsóknarheimildir og viðbúnaður þeirra sem fara með rannsókn og saksókn brota sæti framþróun í takt við breyttan veruleika

Lesa meira

Aðkallandi að hjúkrunarheimilið í Þursaholti rísi sem fyrst

„Það liggur fyrir að við höfum glímt við ákveðinn húsnæðisvanda á Hlíð um langt skeið og hefur hann haft áhrif á okkar starfsemi. Það kom upp mygla í húsnæðinu og við þurftum að loka rýmum og því fylgdu mikil óþægindi fyrir okkar skjólstæðinga,“ segir Teitur Guðmundsson forstjóri Heilsuverndar og samstæðu.

Lesa meira

Alfreð Gíslason hlýtur heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands 2026

Akureyringurinn Alfreð Gíslason fyrrum leikmaður  og þjálfari KA hlaut í gær heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands 2026 fyrir einstakan árangur á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa verið brautryðjandi íslenskra handknattleiksþjálfara erlendis.

Lesa meira

Starfsmenn Slippsins vinna að viðhaldi á Jökulsárbrúnni

Undanfarna daga hefur Slippurinn iðnaðarþjónusta unnið að viðhaldi á Jökulsárbrúnni. 

Lesa meira

Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið?

Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB ættu að vera stjórnvöldum umhugsunarefni, ekki bara vegna málsins sjálfs heldur vegna þess hversu skýr skil urðu milli höfuðborgar og landsbyggðarinnar.

Lesa meira

Ingólfur Jóhannsson er Akureyringur vikunnar á facebooksíðu Akureyrarbæjar

Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga vakti á dögunum athygli á slæmri umgengni í skóginum eftir skemmtanahald. „Vanalega er umgengni um skóginn til fyrirmyndar og við hjá Skógræktarfélaginu reynum að ganga á undan með góðu fordæmi. Ingólfur er Akureyringur vikunnar á facebooksíðu Akureyrarbæjar þar sem hann kemur inn á umgengni og fleiri þætti í starfsemi SE:

Hér má lesa viðtalið við Ingólf

Lesa meira

Að verja fé til endurhæfingar er fjárfesting

,,Kannski eigum við það líka sameiginlegt að bera ákveðinn beyg í brjósti, jafnvel ótta yfir því hvert verður framhaldslíf þeirra bygginga sem hér standa allt í kringum okkur. Byggingar þessar tilheyra Kristnesspítala og síðustu áratugi hefur hér verið rekin öflug endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild á vegum SAk, sú eina sinnar tegundar á landsbyggðinni. Því miður hafa þessar byggingar reynst það illa farnar af langvinnum rakaskemmdum og tilheyrandi myglu að ekki er talið heilsusamlegt að nýta þær lengur undir þessa þjónustu."

Þetta sagði Sólveig Pétursdóttir þjónustustjóri og yfirlæknir Endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu SAk í ávarpi sem hún flutti á samkomunni Björgum Kristnesi

 

Lesa meira

Fyrsta skóflustunga tekin að nýjum stúdentagörðum við Háskólann á Akureyri

Alls rísa 124 búsetueiningar í þremur byggingum
 
Lesa meira

Húsið við Hvannavelli 10 til sölu

Húsnæði við Hvannavelli 10, áður bækistöð Hjálpræðishersins á Akureyri hefur verið auglýst til sölu. Uppsett verð er 135 milljónir króna.

Lesa meira

Opinn fundur um vestnorrænt samstarf á Amtsbókasafninu Uppfært!

Norræna félagið á Norðurlandi býður almenningi á opinn kynningarfund um starfsemi Vestnorræna ráðsins í dag miðvikudag 2. september kl. 17:00 á Amtsbókasafninu á Akureyri.

Lesa meira

Stjórnmálin verða að svara þeim sem minnst hafa

Það er kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp. Eldri borgarar eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur. Sumir hafa góðar tekjur og búa við ágæt kjör. Aðrir þurfa að snúa hverri krónu við og hafa verulegar áhyggjur af því hvernig þeir ná endum saman.

Lesa meira

Bæjarráð Fjallabyggðar skorar á stjórn­völd að tryggja fasta við­veru þyrlu LHG á Akur­eyri

Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti samhljóða á fundi ráðsins þann 27 ágúst s.l. að  skora á ríkisstjórn og Alþingi að koma upp fastri starfsstöð  fyrir þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.

Lesa meira

Ein nótt segir ekki alltaf alla söguna um kæfisvefn barna

Niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem unnin var með þátttöku starfsfólks Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), benda til þess að kæfisvefn hjá börnum geti mælst talsvert mismunandi frá einni nóttu til annarrar. Niðurstöðurnar vekja athygli á því að mæling yfir eina nótt gefur ekki alltaf nægilega góða mynd af alvarleika kæfisvefns hjá einstaka barni.

Lesa meira