Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum
Það er bæði eðlilegt og mikilvægt að tekist sé á um forgangsröðun fjármuna Akureyrarbæjar. Við eigum að ræða hvort við verjum of miklu í einn málaflokk og of litlu í annan, hvort sem um er að ræða skóla, félagsþjónustu, götur, menningu, íþróttir eða aðra innviði. Það er einmitt hlutverk stjórnmálanna að forgangsraða þegar ekki er hægt að gera allt í einu. En slík umræða verður að byggja á heildarmyndinni og réttum forsendum.