Norðurorka - Neyðarstjórn í viðbragðsstöðu
Birgðir heits vatns í geymum Norðurorku á Akureyri hafa verið undir öryggismörkum frá því á mánudagskvöld vegna aukinnar notkunar í kuldakastinu síðustu daga. Neyðarstjórn fyrirtækisins er í viðbragðsstöðu og unnið er að því að styrkja stöðuna, meðal annars með því að gangsetja olíukyndingu við Mímisbraut. Íbúar eru hvattir til að fara sparlega með heita vatnið á meðan ástandið varir.