Rekstur Strætó þungur
Það eru engar tölur komnar á hreint, en það er ljóst að reksturinn er erfiður. Við ætlum að sjá hvernig júlí og ágúst koma út og meta svo stöðuna í framhaldinu, segir Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum um rekstur almenningssamgangna á svæðinu. Eyþing heldur uppi almenningssamgöngum á svæðinu í samvinnu við Stræó bs., auk áætlunarferða á milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Fjallar er um erfiðan rekstur Strætó í Vikudegi í dag. Heimildir blaðsins herma að sveitarfélögin í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum megi eiga von á 20 millj. kr. reikningi. Heimamenn hafa óskað eftir fundi með innanríkisráðherra.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags í dag