Rekstur Strætó þungur

„Það eru engar tölur komnar á hreint, en það er ljóst að reksturinn er erfiður. „ Við ætlum að sjá hvernig júlí og ágúst koma út og meta svo stöðuna í framhaldinu,“ segir Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum um rekstur almenningssamgangna á svæðinu. Eyþing heldur uppi almenningssamgöngum  á svæðinu í samvinnu við Stræó bs., auk áætlunarferða á milli Akureyrar og Reykjavíkur.

Fjallar er um erfiðan rekstur Strætó í Vikudegi í dag. Heimildir blaðsins herma að sveitarfélögin í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum megi eiga von á 20 millj. kr. reikningi. Heimamenn hafa óskað eftir fundi með innanríkisráðherra.

 

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags í dag

Nýjast